Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
fimmtudagur, janúar 22, 2009
Engin mótmæli föstudagskvöld eða laugardagskvöld. Látum ekki
djammmenninguna blandast mótmælunum og byltinguna blandast fylleríi.
Látið ganga sem víðast.
skráð klukkan 09:01
miðvikudagur, janúar 21, 2009
Fyrirhuguðu anarkistaspjalli sem fara átti fram á Kaffi Hljómalind í gær var frestað um viku þar sem tímabundin hávaðamótmæli gærdagsins breyttust í byltingu.
Þingfundur er boðaður aftur klukkan 13.30 og sömuleiðis frekari hávaðamótmæli til að beita þingheim þrýsting.
Mætum í samstöðuhug, það er enginn pólitískur tékklisti við innganginn, einstaklingar sem hafa hugsað sér að mæta einungis til að pirra lögguna eða djamma eru beðnir að halda sig heima.
Andspyrna, stolt að vera hluti af byltingunni!
skráð klukkan 09:24
mánudagur, janúar 19, 2009
Anarkistaspjall á Hljómalind - 20/01/08
Sigurður Harðarson, hjúkrunarfræðingur og anarkisti stendur fyrir anarkistaspjalli á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23 næstkomandi Þriðjudag, 20. Janúar. Sigurður mun byrja á lítilli kynningu á grunnhugmyndum anarkisma sem svo mun leiða út í allsherjar spjall þeirra sem mæta.
Það er alltaf gott að þeorísera örlítið. Fundurinn hefst kl. 18:00.
skráð klukkan 13:57