Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
sunnudagur, júní 29, 2008
Á náttúrutónleikunum í gær var góð stemning. Leist ekkert á rokið þegar ég kom á staðinn, um fjögurleytið, en snemma dró úr vindi og ég kom líka klæddur viðbúinn kulda þegar liði á daginn.
Vinir mínir frá Saving Iceland höfðu komið fyrr (ég svaf á mínu græna eftir næturvakt föstudagsnóttina) og sett upp tjald og komið með kassa af bæklingum fyrir áhugasama. Þá var komið upp eitt langtjald fyrir umhverfis- og náttúruverndarhópa eins og Landvernd og Framtíðarlandið og lífræna verslun og Fair Trade búðina.
Lífræna kaffihúsið Hljómalind var þarna líka til hliðar en skyndilega ákváðu þau að færa sig um set og fara fram fyrir. Þá áttaði ég mig á því að allir hóparnir sem voru að kynna sitt efni, málstað tónleikanna, voru bakvið sviðið. Framan við sviðið, til hliðar og aftan við svæði tónleikagesta, var tjald að selja kók og snakk og lítið borð með sykurfrauði. Kókfáninn reis hátt margfaldur og rauður.
Við í Saving Iceland færðum okkur með Hljómalind og settum upp borð, kynntum starfsemina, dreifðum nýja bæklingnum okkar ætluðum fyrir ferðamenn og seldum boli með áletruninni "Ég er fúll náttúruverndarskæruliði" sitthvort á íslensku og ensku.
Þessir heimagerðu bolir ruku út, sérstaklega ferðafólki fannst þetta skemmtilegur minjagripur og skildu sneiðina þar sem haft hefur verið eftir Björk að nýja heimasíðan sem hún og fleiri standa að sé ekki fyrir neina "fúla náttúruverndarskæruliða". Sumir í Saving Iceland taka þetta beint til sín og glotta í kampinn.
Við ræddum einnig við mikið af fólki og sumir úr hópnum gengu um með dreifirit og spjölluðu við tónleikagesti.
Tónleikarnir voru í heildina hin besta skemmtun, góður andi á svæðinu og fólk brosmilt. Sumir bölvuðu hljóminum á svæðinu en aldrei verða haldnir tónleikar þar sem ekki koma til spekúlantar og finna að hljómburði.
Það sem hinsvegar sló mig á afar neikvæðan hátt var að ekkert af því þjóðþekkta fólki sem kallaði til þessara tónleika hafði nokkurn hlut að segja um verndun íslenskrar náttúru. Ekki eitt einasta aukatekið orð.
Þau stóðu sig með prýði á sviðinu, sem skemmtikraftar, en létu eins og þau hefðu ekkert að segja um þá gífurlegu eyðileggingu sem er að eiga sér stað til þess að viðhalda þenslu ofþanins efnahagskerfisins.
Það finnst mér afar sérstakt.
Þarna var varpað á stóran skjá fallegum myndum af íslenskum náttúrusvæðum þegar eyðilögðum og í hættu með innskotum um mengunaráhrif og ýmsar fleiri staðreyndir um áhrif stóriðju á land, vistkerfi og samfélag.
Það var gott en ekki afar áhrifaríkt. Ekki miðað við hvað hægt hefði verið að gera.
Ég hef farið á baráttutónleika friðarsinna þar sem inn á milli skemmtikrafta komu fram postular og ræðumenn og hvöttu mannskapinn til dáða.
Eru náttúruverndarar feimnir við eigin pólitík? Hrædd um að verða leiðindapúkar? Fýlupúkar kannski? Var það þessvegna sem áróðursborðunum var ætlaður staður bakatil, óhreinu börnin?
Eða var þetta bara skipulagsóhapp? Vona það frekar.
En afhverju töluðu ekki Björk og Sigurrós frá hjartanu um þessi mál? Veit að þau flytja tónlist sína frá hjartanu en þau hefðu getað minnt fólk á tilefni tónleikanna.
Ruslið var hrikalegt þegar tónleikagestir fór heim. Ruslatunnur yfirfullar.
Afhverju blakti fáni kóka-kóla hærra en fáni náttúruverndar? Erum við svo firrt orðin að ruslframleiðsla kóka-kóla er orðin umhverfisvæn? Hvaða kröfu hefur kóka-kóla á að taka þátt í tónleikum til náttúruverndar?
Ég skemmti mér vel en aðallega leið mér vel í hjartanu eftirá vegna þess að ég var hluti af þeim hóp sem gerði sitt besta til að minna á að stjórnvöld á Íslandi og víðar eru í samvinnu við stóriðjufyrirtæki og orkufyrirtæki að eyðileggja mörg falleg svæði blessaðs landsins í þeirri von að hægt sé að viðhalda neyslu- og þanstigi efnahagskerfisins.
P.S.
Konan mín var heldur ekki sátt við það skipulagsslys að koma ekki salernum fyrir á svæðinu. Karlar migu í runnana en konur þurftu hálftíma biðröð að skautahöll og sundhöll.
skráð klukkan 15:52