Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
laugardagur, júní 07, 2008
A documentary about a projected hydro-electric power-plant in Iceland to be built in 1999, to provide electricity for an aluminium smelter. Its construction would have meant the destruction of Eyjabakkar. But those preparations were the prelude to the now built dams at Karahnjukar, north of Vatnajokull, in the East of Iceland. The geothermal region Hagöngur west of Vatnajokull had already been destroyed in 1998 by damming for hydro-electric power.«
http://video.google.com/videoplay?docid=-6641103737354173076&q=kings+eyjabakkar&ei=3wRJSODFLIfcjALA9t3SDA
skráð klukkan 07:19
miðvikudagur, júní 04, 2008
Ekkert Andspyrnubíó þessa vikuna... tökum okkur lítið frí en komum aftur
í næstu viku með nýja dagskrá fyrir næstu fjórar vikur:
- Myndina PickAxe - sem fjallar um árangursríkan
umhverfis-aktívisma í Bandaríkjunum
- Surplus: Terrorized into Being Consumers -
klukkutímalöng and-neyslumynd í MTV stíl
- What Would Jesus Buy? - þar sem Reverend Billy
og the Church Of Stop Shopping Gospel kórinn reyna
að bjarga bandaríkjunum frá neyslu-hjartastoppi
- og upplýsingakvöld fyrir komandi mótmælabúðir
umhverfishreyfingarinnar Saving Iceland.
Njótið glápslauss kvölds á morgun, sjáumst eftir viku!
Andspyrna
skráð klukkan 08:37
mánudagur, júní 02, 2008
Fimmtudaginn n.k. 5. júní verða haldnir pönktónleikar í baksal Hljómalindar. Þar koma fram eftirfarandi:
SAKTMÓÐIGUR
DYS
SLEEPS LIKE AN ANGRY BEAR
BRILLO
Tónleikarnir hefjast klukkan 20.00
Aðgangur er 500 kr (nema fólk sé því blankara ... komið þá og talið við okkur í dyrunum eða komið með klinkið ykkar) þetta eru nebbilega ekki bara pönkarar að fagna eigin tilveru heldur til að hjálpa til við að borga leiguna af salnum og halda honum opnum fyrir svona uppákomur og einnig til að hjálpa Saving Iceland að verja klakann fyrir taumlausri græðgi orkufyrirtækjanna.
Andspyrna dreifing verður á staðnum með söluborð með lesefni, bankabolina frægu endurprentaða, og einhverja tónlist.
Notið tækifærið til að kynna ykkur eitt af stærstu róttæklingabókasöfnum í Evrópu; Andspyrnubókasafnið sem staðsett er í Hljómalind.
skráð klukkan 21:50