Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
laugardagur, maí 17, 2008
Félagi minn einn sat á Kaffi Sólon. Fólk sat skrafandi við hvert borð þegar inn kom maður sem félaginn kannaðist við sem geðfatlaðan einstakling sem er mikið á ráfi í miðbænum, feitlaginn miðaldra karlmaður sem stundum gerir skrýtna hluti á almannafæri, eins og að syngja inni í 10-11.
Feitlagni, geðfatlaði maðurinn kom inn á þéttsetinn Sólon og kallaði yfir salinn; "MÁ ÉG BIÐJA UM ÞÖGN HÉRNA!" og sagði þetta aftur og linnti ekki látum fyrr en allur salurinn þagði og horfði á hann.
Þá sagði hann: "Ég vildi bara láta ykkur vita að ég er óhemju einmana maður."
Það voru engin viðbrögð í salnum.
Hann aftur: "Ég vildi segja ykkur að ég er alveg afskaplega einmana maður."
Fólk í salnum sat sem fastast, þagði og margir horfðu í gaupnir sér.
Þá fór hann aftur út.
skráð klukkan 03:08
þriðjudagur, maí 13, 2008
Andspyrna heldur áfram að dekra við róttæklinga landsins, jafnt sem aðra áhugasama og bíður uppá kvikmyndasýningar á hverjum Miðvikudegi í Maí. Sýningarnar fara fram á Kaffi Hljómalind kl. 20:00.
Miðvikudaginn, 14. Maí sýnum við myndina The Fourth World War
- Fjórða Heimsstyrjöldin - tekið úr ræðu Marcos þar sem hann kallaði stríðið gegn hnattvæðingu Fjórðu Heimsstyrjöldina - er ágrip yfir róttæka andspyrnu gegn alþjóða kapítalsisma. Í myndinni er blandað saman efni alls staðar að úr heiminum t.d. Palestínu, Mexíkó, Ítalíu, Argentínu og Kóreu.
Trailer hér.
Hefst kl. 20:00 og sjálfsögðu er frítt inn!
skráð klukkan 17:43
sunnudagur, maí 11, 2008
Dauðinn í vatninu
Þeir sögðu
að hún hefði löngu
verið búin að þessu
hvað veit ég
fór bara að sofa
þegar ég kom
heim eins og
alltaf eftir
þessar næturvaktir
og svaf fram eftir
degi
dreymdi fugla
eins og frelsið
væri æðsta hugsjón
svefnsins
brá eins og andskotanum
þegar ég fór að míga
og hún í baðkerinu
vatnið löngu kalt
svo kalt að
ég gat ekki hugsað
neitt hlýtt lengi lengi
veit ekki hvað henni
gekk til
sosum ekki
verið margmálug síðan
krabbinn tók
systur hennar
sat alltof lengi
hjá henni og tók
lyktina af dauðanum og
spritti með sér heim
allt svo andskoti hreint
að allt deyr sem kemur
þarna inn
sat á flísunum
góða stund
þó ég vissi hvað
rétt væri að gera
búin að sofa sitt
hvorum megin við
vegginn hvort eð er en
hún með vitin
undir dumbrauðu yfirborðinu
svo hvít og eitthvað svo
sokkin
í heitapottinum að striplast
og við grínuðumst með
hvernig brjóstin hennar
flutu
ilmandi að morgni á
góðu tímunum okkar
eins og þau drægju hana
niður núna
man þegar ég sökk
fór of hratt
út í djúpu
laugina og
sundkennarinn brjálaður
mamma brjáluð
ég bara feginn að anda og
skildi ekki
fyrr en seinna að þetta var
lífsgleðin að átta sig á
eigin mikilvægi
nú sökk ég
ótengt þyngdaraflinu
týndi skilningnum á þessu
mikilvægi fann
stóra holu myndast innan
í mér stærri en ég sjálfur
eins og sjálfið rúmaðist
ekki innan í mér grönnum
svo
fór
ég
og hringdi
skráð klukkan 20:55