Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


föstudagur, maí 02, 2008

Enn að horfa á
heiminn gegnum gler
óviss hvort ég er
varinn fyrir heiminum
eða á hinn veginn
reyndi að standa á haus
og horfa út
en heimurinn var áfram
á hvolfi
full lélegt efni
þetta ál til að
hægt sé að
hanga í gardínustönginni
gæti hefnt mín
fyrir misheppnað deit
í síðustu viku
og myrt heilan skólabíl
af börnum
útá einelti af hendi íþróttakennara
í 5. og 6. bekk
ætti maður kannski að
rölta niður á pósthús
með haglabyssuna
og salla niður
eitthvað af mannskapnum
geyma eitt skot fyrir
undirritaðan
helvítis ríkisstjórnin
hvað er maður ekki búinn
að borga þeim
vinnandi maðurinn
gæti vaðið um alþingi
með sveðju án þess
að vera álitinn klikkaður
yrði varla stoppaður
segi svo DV að konan
séð búin að ríða bróður
mínum árum saman og
kalli mig ónýtan
mig fjallhraustan
kæmist kannski
á ofbeldisnámskeið
eða eitthvað annað
út fyrir þetta
gler og
óljósan
tilgang
þess
skráð klukkan 22:36

þriðjudagur, apríl 29, 2008

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Núna á MIðvikudaginn, 30. Apríl sýnum við myndina All Power To The People
The Black Panther Party var róttækur baráttuhópur blökkumanna í Bandaríkjunum sem starfaði frá miðjum sjöunda áratugnum að upphafi þess áttunda. Eftir dauða Malcom X árið 1965 fannst Svörtu Pardusunum að réttindabarátta blökkumanna þyrfti að ná öðrum hæðum. Hópurinn kallaði eftir vopnaðri andspyrnu í þeim tilgangi að stuðla að auknum réttindum svartra. Pólítísk markmið hópsins áttu það til að missa athygli vegna herskárra aðgerða hans þar sem heimspeki og aðferðfræði hópsins varð róttækari þegar á leið.

Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.
skráð klukkan 11:03

mánudagur, apríl 28, 2008

Eltum vegakortið
inni í lágan birkiskóginn
settumst að
í húsi úr innfluttu timbri
birgð af mat
bókum
kvikmyndum
og vilja til að búa þarna
ein
fyrir vikuna

Forvitnisleiðir
ófærir drulluslóðar
í íslenska vorinu
sátt við sólina
í skjóli við norðargjóluna
himininn
sýndi skýjafar
og stjörnur
þegar dimmdi

Sást hvergi til manna

Stelkurinn hætti fljótlega
að vara við okkur
hrossagaukurinn merkti svæðið
í vorverkunum
hvergi nærri
nokkur maður
sem gat sagt okkur
til
skipað
eins og við ættum að hlýða

upplifðum
tímabundið
áhrifalaust
svæði
sem var okkar

Best kannski
að okkur fór
aldrei
að leiðast
félagsskapurinn
skráð klukkan 06:23

Fórum saman á tónleika um daginn
Morðingjarnir stoltir með útgáfu
Í Iðnó
Reykjavík! og Sudden Weather Change vermdu mannskapnum
Setti upp bóksöluborð í andyrinu
seldi eina
drukkið fólk kann ekki að lesa
Blindfullt partý á efri hæðinni álpaðist af og til niður
í hávaðann
skoðaði okkur eins og stofnun
horfði á ská
eins og feimin naut
við nývirki
Fórum heima áður en yfir lauk
hún þreytt í bakinu
ég á fætur fyrir sextán tíma vakt daginn eftir
Fengum okkur tebolla
sátum ósköp þreytt eitthvað í stofunni
"Erum við að verða of gömul fyrir pönktónleika?"
ég hafði staðið með steingervingaupplifun
eins og síðasti paunkarinn
sem gengur í málmsettum leðurjakka
hatað fulla pakkið sem
hrinti vinum sínum
í misskildri upplifun
af sex pistols fílingnum
"Nei, við erum þau sömu
pönkið er það sama
þau hin eru horfin
hættu að koma
þannig verðum við bara óvart elst"
stundum þreytt í bakinu
stundum viljandi ná fullum svefni þrátt fyrir spennandi tónleika
stundum hundleið á drukknu fólki
sem trúir svo innilega
að það sé með þetta á hreinu
skráð klukkan 06:03


This page is powered by Blogger. Isn't yours?