Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


laugardagur, apríl 05, 2008

Charles Bukowski setur fram skilgreiningu á persónulegum anarkisma:


enga leiðtoga, takk fyrir

upgötvaðu sjálfan þig og síðan skaltu enduruppgötva þig,
ekki synda í sama sleninu
uppgötvaðu sjálfan þig og síðan skaltu enduruppgötva þig
og
haltu þig frá greipum meðalmennskunnar

uppgötvaðu sjálfan þig og síðan skaltu enduruppgötva þig,
breyttu hljómi þínum og formi svo oft að þeir geta
aldrei
flokkað þig

lífgaðu upp á tilveru þína og
vertu sáttur við það sem er
en einungis á þeim forsendum sem þú hefur fundið upp
og fundið upp aftur

kenndu sjálfum þér.

og enduruppgötvaðu líf þitt vegna þess að þú verður að gera það;
þetta er þitt líf og
saga þess
og nútíð þess
tilheyra aðeins þér
sjálfum



Charles Bukowski
úr "Come on In, new poems"
skráð klukkan 11:44

Vil vekja athygli áhugasamra á að bókasafn Andspyrnu er nú flutt í Kaffi Hljómalind, við laugaveg 23. Þar er opið allan daginn, alla daga og fólk getur náð sér í anarkistarbækur og aðrar róttækar bókmenntir til að kynda hugann.

Nú nýverið bætti ég við nokkrum "anarchist fiction og ecofiction" - skáldsögum sem glíma við aðstæður róttækni, byltingar og umhverfisbaráttu.
skráð klukkan 01:55

Af hjukrun.is

Nú er ekki eins og maður hafi alltaf gengið um og fundist lífið vera uppfullt af tilgangi og merkingu. Það er bara eins og gengur að flestir dagar eru bjartir, aðrir gráleitir og einstöku dagar eru dimmir, jafnvel drungalegir. Ég var ekkert viss um hvað ég ætlaði mér að gera í lífinu, er það kannski ekki enn. En það er ekkert neikvætt heldur því minn skilningur á lífinu og tilverunni er ekki þannig að ég telji mig geta afgreitt það bara si svona hvað ég ætli mér að gera við líf mitt.

Eftir að hafa klárað stúdentspróf út á óljósa hugmynd um mögulegt framhaldsnám einhverntímann í framtíðinni, fór ég til Þýskalands í eitt ár á vegum samtakanna Alþjóðleg Ungmennaskipti. Þar tók ég þátt í uppsetningu leikrits í þrjá mánuði, aðstoðaði við húsbyggingar í styttri tíma, flæktist um nágrennið og las margar bækur áður en ég fór ég að vinna á dagheimili fyrir fjögurra til sex ára börn. Það var alveg nýtt fyrir mér. Sum barnanna voru miður sín þegar ég hætti og fór heim til Íslands. Það kom mér þægilega á óvart. Það að ég skyldi koma svona við líf einhverra án þess að um væri að ræða kærustu var líka nýtt fyrir mér.

Reynsla mín af vinnunni með börnin leiddi til þess að heima réði ég mig til starfa við aðhlynningu á elliheimili. Elliheimilið reyndist vera hjúkrunarheimili í þyngri kantinum. Mér var kennt að búa um rúm þannig að lakið brotnaði rétt á hornunum og handtökin við aðhlynninguna lærði ég af öðru ófaglærðu starfsfólki. Siðferðilega rétta framkomu við sjúklingana átti ég einhvernveginn að hafa lært annarsstaðar.

Skjólstæðingar mínir voru þakklátt fólk og létu mig vita af því þegar þeim líkaði vel hvernig ég sinnti þeim. Aftur varð ég fyrir því að ég var að snerta líf annara og það gaf hlýja tilfinningu innan brjósts. Nokkrum vikum síðar áttaði ég mig á því að ég sá fram á menntun og starf sem í mínum huga gaf atvinnumarkaðnum tilgang.

Ég trúi því að samfélag okkar geti gengið þannig að við getum öll verið nokkuð sátt við okkar hlut. Ég trúi því að við getum öll umgengist hvort annað af gagnkvæmri virðingu og þannig gert okkar líf og hvors annars betra. Ég trúi því líka að fólk almennt hafi til að bera nægilegan þroska til að umbera hvort annað, kosti og galla, og geti hjálpast að til að bæta heiminn. Því hvert fyrir sig erum við heill heimur og þegar við snertum heim hvors annars á jákvæðan hátt erum við að bæta við jákvæðum byggingareiningum í heiminn í heild sinni.

Hvort sem ég telst með því vera rómantískt fífl eða ekki þá er þetta hluti af þeim tilgangi sem ég finn í starfi mínu sem hjúkrunarfræðingur. Það er sama hvort að ég er að vinna á öldrunardeild eða gjörgæslu. Allsstaðar finn ég fyrir því að líf mitt og skjólstæðinga minna eru að snertast og það er góð tilfinning þegar vel gengur. Stundum verður nálægðin yfirþyrmandi, átökin of mikil og mig langar burt. Stundum kemst ég ekki burt heldur stend vaktina áfram þegar heim er komið, rýk á fætur oft um nóttina og ætla að fara að gefa lyf eða róa einhvern sem ég hef ekki getað skilið eftir í vinnunni. Það er bara eins og gengur. Starf sem ekki snertir við mér er ekki tíma míns virði. Lífið er of stutt til að vera ekki að gera hluti sem skipta máli.
skráð klukkan 01:49

fimmtudagur, apríl 03, 2008

Kranklifur og Kleinur 6. Apríl - Álver í Helguvík?

Saving Iceland hefur síðastliðna mánuði staðið fyrir opnum
fundum, sem við köllum Kranaklifur og Kleinur, fyrsta Sunnudag
í hverjum mánuði.

Á Sunnudaginn næsta, þann 6. Apríl, höfum við boðið aðilum frá
Sól á Suðurnesjum að koma og segja frá því sem er að gerast í
Helguvík þessa dagana. Hugmynd okkar var einnig að fá einhverja
niðustöðu út úr fundinum t.d. varðandi komandi aðgerðir gegn
framkvæmdunum.

Þar sem Helguvíkurmálið er allt frekar stórt í sniðum en íslenska
umhverfishreyfingin ekkert allt of stór finnst okkur að við ættum
að vinna saman í þessari baráttu. Við vonum því að þessi fundur
geti leitt af sér frekara samstarf íslenskra umhverfishreyfinga.

Fundurinn fer fram á Kaffi Hljómalind, Laugavegi 23 og hefst kl.
19:30. Boðið verður upp á Kaffi og með því...

Vonumst til að sjá þig!

Kv, Saving Iceland.
skráð klukkan 07:24

miðvikudagur, apríl 02, 2008

Andspyrna stendur fyrir vikulegum kvikmyndasýningum, þar sem boðið er upp á róttækar kvikmyndir um grasrótarpólítík, aktívisma og andspyrnu. Sýningarnar fara fram á hverjum Miðvikudegi kl. 20:00 á Kaffi Hljómalind, Laugarvegi 23.

Miðvikudaginn 2. Apríl sýnum við myndina Terrorists: The Kids They Sentenced. Nokkrir einstaklingar á aldrinum 19 - 30 ára voru handteknir og dæmdir til fangelsisvistar eftir mótmæli í tengslum við ráðstefnu Evrópusambandsins í Gautaborg árið 2001. Lukas Moodyson talar við hin dæmdu um tilgang mótmælanna, handtökurnar, aðgerðir lögreglu, framtíðina og fleira?


Hefst kl. 20:00 og að sjálfsögðu er frítt inn.

---

Dagskráin í Apríl:
Miðvikudagurinn 9. Apríl - Narmada, A Valley Rises
Narmada áin í hjarta Indlands er heilög á Hindúa. Narmada dalurinn er híbýli og lifibrauð innfæddra sem lifa og starfa við árbakkann. Neðarlega í ánni er stórstífla við það að verða tilbúin, kostuð af World Bank. Í umræðunni um stífluna gleymist alltaf að nefna að stíflan mun eyðileggja yfir 100 ræktarlönd og heimili yfir 160 þúsund innfæddra. Myndin fylgir 200 kílómetra mótmælagöngu 6000 manns að stíflunni, sem farin var árið 1990.

Miðvikudagurinn 16. Apríl - The Angry Brigade
Angry Brigade var hópur anarkista sem stóð fyrir röð sprenginga á Bretlandi á árunum 1970 - 1972. Meðal skotmarka hópsins voru bankar, sendiráð og heimili þingmanna og einn meðlima hópsins var Stuart Christie sem áður hafði verið handtekinn á Spáni fyrir að reyna að myrða Franco. Aðgerðum hópsins lauk með lengstu glæpa réttarhöldum í sögu Englands.

Miðvikudagurinn 23. Apríl - Bolivia Is Not For Sale
Auðlindum Bólívísku þjóðarinnar var rænt af henni, en íbúar landsins halda virðingu sinni og halda áfram að berjast. Mótmæla-alda reis í Október 2003 sem varð til þess að forseti landsins hröklaðist úr embætti og bandaríska heimsveldinu var alvarlega ögrað. Baráttan gegn sölu bólívískra náttúruauðlinda til alþjóða stórfyrirtækja heldur áfram og er á sama tíma kjarkmikil árás á nýfrjálshyggjuna.

Miðvikudagurinn 30. Apríl - All Power To the People
The Black Panther Party var róttækur baráttuhópur blökkumanna í Bandaríkjunum sem starfaði frá miðjum sjöunda áratugnum að upphafi þess áttunda. Eftir dauða Malcom X árið 1965 fannst Svörtu Pardusunum að réttindabarátta blökkumanna þyrfti að ná öðrum hæðum. Hópurinn kallaði eftir vopnaðri andspyrnu í þeim tilgangi að stuðla að auknum réttindum svartra. Pólítísk markmið hópsins áttu það til að missa athygli vegna herskárra aðgerða hans þar sem heimspeki og aðferðfræði hópsins varð róttækari þegar á leið.
skráð klukkan 12:22


This page is powered by Blogger. Isn't yours?