Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


fimmtudagur, janúar 31, 2008

Kranaklifur og Kleinur - Kaffispjall Saving Iceland - Sunnudaginn 3ja febrúar kl. 19:30 á Kaffi Hljómlind, Laugarvegi 21.

Saving Iceland hreyfingin er hjúpuð dulúð, orðrómi og almennum annarleika. Sú mynd sem fjölmiðlar og bloggarar gefa af okkur er skökk. Þess vegna höfum við mánaðarlega gamaldags kaffispjall í Reykjavík, þar sem fólk getur komið og hitt sum okkar og rætt málin. Fólki sem hefur eitthvað við S.I. að athuga er sérlega velkomið að koma og spjalla!

Í þetta skiptið verður dagskrá kvöldsins opin og mun ráðast af því hverjir koma og hvað þeir vilja gera; horfa á kvikmyndir tengdar beinum aðgerðum, taka þátt í heimspekilegum umræðum eða hvað annað sem fólki dettur í hug. Við bjóðum upp á kaffi og með því.

Sjáumst,
Saving Iceland.
skráð klukkan 22:08

mánudagur, janúar 28, 2008

Andspyrnubolirnir með áletruninni BANKANUM ÞÍNUM ER SAMA UM ÞIG eru komnir úr endurpressun.

Fást í Ranimosk á Laugavegi.

Margir hafa spurt um þá eftir að fyrsta pressun kláraðist. Nú er s.s. hægt að nálgast þá aftur.
skráð klukkan 03:46


This page is powered by Blogger. Isn't yours?