Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


föstudagur, desember 14, 2007

"Frelsi er hugsjónastefna getin af ljóði. Frjálsræði er pólitísk stefna og kemur fram í félagslegu skipulagi. Frjálsræði er ákveðið og allt frá Magna Carta hefur það verið fest í lögum. Frelsi er torræðara fyrirbæri en ekki síður raunverulegt, það er persónulegt og andlegt, og það er í því ástandi sem mannsandinn öðlast framtakssemi og sköpunargáfu. Frelsisstytturnar tryggja að frelsið megi iðka en innan þess rýmis á frelsið sér stað ómeðvitað. Það er svörun hugans við böndum efnisins, tilraunar til að umbreyta efnislegum aðstæðum. Í þessum jákvæða skilningi á frelsinu felst, eins og Camus hefur bent á, uppreisn gegn veruleikanum: Staðfesting á rökhyggju mannsins, á skilningi mannsins á fegurð og skipulagi, innan fáránleika tilveru okkar.

Herbert Read - úr "Anarchy and Order - Essays in Politics."
skráð klukkan 06:14

fimmtudagur, desember 13, 2007

Síðasti séns að heimsækja USA. 2008 fer Homeland Security á fullt með tíu fingra skann af öllum erlendum ríkisborgurum sem fljúga til allra stærstu flugvalla USA.

Sjá http://www.dhs.gov/xnews/releases/pr_1197300742984.shtm

Planið er að þetta fari í gang á fyrstu nokkrum mánuðum ársins.

Við hjónaleysin erum allavega hætt við. Líst ekki á að fingraförin okkar séu á skrá hjá jakkafatabófum FBI.
skráð klukkan 19:34

mánudagur, desember 10, 2007

Fyrstu fréttir eru yfirleitt alltaf verri en veruleikinn þegar þau hringja inn ljót slys.
Við undirbúum okkur alltaf fyrir það versta. Fyrst er hringt og meldað að þeir séu á leiðinni í harðan árekstur. Líklega fjórir eða einhvern önnur ákveðin tala af slösuðum. Staðsetning nefnd og kannksi einhverjar fleiri upplýsingar. Síðan hringja þeir inn ástandið á þeim sem eru að koma. Við hringjum út önnur teymi sem þurfa að vera á staðnum þegar þeir skjótast inn.

Um daginn hljómaði ein meldingin upp á útvíkkaða púpillu (í auga) sem þýðir þá yfirleitt blæðingu inn í höfðinu. Það er slæmar fréttir. Dregur alvarlega út líkum viðkomandi á að koma sæmilega út úr slysinu og eftirköstum þess.

Þegar þeir eru komnir inn til okkar er málið að gera mjög snögga úttekt á ástandinu. Síðan bruna í sneiðmyndatækið, svo fremi að sá slasaði þurfi ekki snöggrar meðferðar við. Hvort sem það er að svæfa hann, stabilisera ljót brot, leiðrétta blóðþrýstingsfall eða hvaðeina.

Við köllum það "traumascan" þegar við rennum fólki heilu í gegn til að fá heildarmynd af mögulegum skaða. Höfuðið fyrst.

Þarna um daginn þegar meldingin hljómaði eins og eitthvað ljótt væri að eiga sér stað inni í höfði þess slasaða bárust fréttirnar fljótt inn að það væri "í lagi með höfuðið á honum." Fagnaðarbylgja fór um teymið. Sum okkar hrópuðu upp af gleði og "highfive" á næsta mann en aðrir létu sér nægja að brosa út að eyrum. Þá er gott að vera hluti af teymi. Gamlir pönkarar hafa það ekkert endilega í sér að vera hluti af teymi.

Lærði það á þessu ári sem ég starfaði á gjörgæslu, að það er gott að geta sagt ættingjum frá því að höfuð og mæna séu í lagi. Brotin bein gróa.
skráð klukkan 07:00


This page is powered by Blogger. Isn't yours?