Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk
laugardagur, desember 22, 2001
Eftir frábærlega heppnaða Sólstöðuhátíð í gær er það mér efst í huga hve tónleikagestir stóðu sig vel. Eiginlega finnst mér að þau sem komu þarna og skemmtu sér eigi miklu meira hrós skilið en hljómsveitirnar og listamennirnir eða aðstandendur hátíðarinnar. Það voru þarna yfir 200 manns og þaraf varð ég var við innan við fimm eitthvað ölvaða. Krakkarnir slömmuðu og hoppuðu ofan á hausinn á hvort öðru af innlifun og án þess að nokkrum sem til þekkti gæti dottið ofbeldi í hug. Og þvílíkur kraftur og þvílík elja. T.d. vorum við í Forgarði Helvítis búnir að æfa upp prógramm sem á köflum tengdi saman tvö og þrjú lög þannig að úr urðu langir kaflar og okkar lög eru óneitanlega með hraðasta móti, en samt var liðið að slamma allan tímann.
Eins og enska hljómsveitin Stampin Ground sagði um íslenska hardcore krakka, þegar Villi vinur minn úr hljómsveitinni I Adapt flutti þá inn til tónleika, þá er magnað að hér slammar liðið með bros á vör. Vinir og kunningjar sem búa í Noregi hafa einnig kvartað undan því að þar eru allir að hamast svo mikið við að vera svalir að enginn getur skemmt sér. Fólk hangir á tónleikum með krosslagðar hendur og skeifu.
Okkur sem stóðum að þessu fannst líka frábært að sjá að hátíðina sóttu þrír fatlaðir strákar. Tveir komu í hjólastólum og fengu aðstoð upp tröppurnar og ég veit ekki betur en að þeir hafi skemmt sér vel líka. Ég hef aldrei séð fólk í hjólastólum áður á svona grófum tónleikum. Mér finnst þetta ekkert annað en frábært og vona að ég sjái þessa stráka sem oftast á tónleikum.
Samhentur hópur rokkara gekk frá öllum græjum og kom fremstu sætaröðunum úr bíóinu aftur fyrir strax um nóttina. Það er búið að vera nóg að gera og í mörg horn að líta þann mánuð sem liðinn er síðan við ákváðum að halda þessa hátíð. En þau viðbrögð sem við fengum frá tónleikagestum gerðu þetta allt þess virði.
Þakkir frá hamingjusömum pönkara öllum til handa – þið vitið hver þið eruð.
skráð klukkan 20:00
föstudagur, desember 21, 2001
Góða fólk
Það er verið að plata okkur. Allt frá barnæsku er okkur sagt að hin árlega jólahátíð sé haldin til að fagna fæðingu "frelsarans." Við erum alin upp í því að þá þurfum við að eyða miklum peningum því annars verði ekki raunveruleg jól. Okkur hefur verið sagt að jólin séu æðsta hátíð hinnar Kristnu Kirkju og jafnframt að við eigum að bera virðingu fyrir Kirkjunni og öllum hennar kenningum. Okkur er sagt að eini tilgangur jólanna sé iðkun trúarinnar og að jólin séu samverustund fjölskyldunnar í guðs nafni - þ.e.a.s. í nafni hins illa skilgreinda kristna guðs.
Það tók mig mörg ár að átta mig á því að þetta er alltsaman haugalygi. Ég er ennþá, eftir margra ára vangaveltur, að átta mig á því hversu víðtæk þessi lygi er. Ég er ennþá að átta mig á því að allt stjórnkerfi þessa lands, allt samfélagið, öll samskipti okkar og allt okkar líf er gegnsýrt af þessari lygi.
Að ljúga að öðru fólk er að sýna því óvirðingu. Við gerum alveg sömu kröfu til virðingar og hver annar, þeir sem ljúga að okkur eiga enga virðingu skilið af okkar hendi fyrr en þeir draga orð sín tilbaka og biðjast afsökunar á því að hafa logið að okkur öll þessi ár.
En þangað til verðum við að horfa inn í okkur sjálf og átta okkur á því hvernig lygin er búin að hreiðra um sig í sálum okkar. Við þurfum að sparka í rassgatið á okkur sjálfum og leggja í persónulega vakningu. Þegar því er lokið getum við svo farið að sparka í rassgatið á öðrum.
Í dag er hátíð ljóssins og við skulum fagna henni á okkar eigin forsendum.
Ég er að undirbúa ræðuna mína fyrir Sólstöðuhátíðina í kvöld
skráð klukkan 08:43
miðvikudagur, desember 19, 2001
Það er merkilega auðvelt að pota sér með rokktónleika í allrahanda fjölmiðla. Ég sé það að í nær hverju blaði er gamall rokkkunningi að skrifa um rokkið. Fjölmiðlaflóran hérna er líka svo stór eitthvað það vantar líklega stöðugt efni til að fylla öll þessi kjaftablöð. Við fengum mikla athygli út á að halda Andkristnihátíðina í fyrra, vorum endalaust spurðir um Satanisma og djöfladýrkun og þurftum að útskýra afstöðu okkar gagnvart kristni og trúarbrögðum og fengum fína auglýsingu. Því miður voru þeir tónleikar haldnir á vínveitingahúsi svo að margt áhugafólk komst ekki inn.
Ég man vel hversu spennandi var að fara á tónleika þegar ég var tólf ára og það er enn jafn spennandi og þessvegna er það mér persónulega mikilvægt að spila á tónleikum þar sem helst allir komast inn. Aldur á ekki að vera hindrun fyrir rokkáhugafólk, ég hef fengið alveg nóg af því að sjá fólk hætta í rokki afþví að það sé orðið svo gamalt, þannig að það ætti ekki að vera hindrað við að virkjast í rokkinu af því að það sé svo ungt. Fyrir mér er ekki til neinn ákveðinn aldur sem fólki á að leyfast að hoppa um og öskra með á brjáluðum tónleikum. Ég geri það enn og er búinn að gera í tuttugu ár og stefni á að gera í tuttugu ár í viðbót.
Í þættinum Rætur á X-inu í gær ræddum við Þossi þáttastjórnandi um hvort að rokk væri í tísku núna eða hvort að rokkið væri komið til að vera. Ég vildi meina að rokkið væri í tísku núna, þessvegna hefðu 12.000 manns rokið til og hoppað á Rammstein tónleika og þessvegna hefðu HAM spilað fyrir fleiri í sumar en nokkru sinni meðan þeir voru starfandi sem blindfull hljómsveit með hár og skegg í allar áttir. Þossi hélt kannski að rokkið væri komið til að vera og hefði alltaf verið en færi náttúrulega í sínar lægðir inn á milli. Hann vildi líka meina að rokkið hefði alltaf verið í gangi en bara í mismunandi myndum. Þannig væri létta stöffið líka rokk þó að brjálæðingar eins og ég teldu það ekki marktækt.
Mér finnst samt að tískurokkið sýni sig í því að peningakallar eru til í að snerta á þessu. Stór útgáfufyrirtæki gefa út rokkbönd sem kallast gróf á mælikvarða popparanna (FM og Bylgjunnar). Þegar rokkið er þannig orðið smáborgaraeign þá verða tónlistarstrumpar eins og ég og mínir félagar í Forgarði Helvítis, Sólstöfum, Múspell, Changer, Myrk, Klink og fleiri af þeim neðanjarðarhljómsveitum sem eru í gangi í kringum mig, sífellt að verða öfgakenndari til að slá þeim við sem MTV sættir sig við. Það er gaman, ég á eftir að verða virkilega hás og útkeyrður eftir Sólstöðuhátíðina næsta föstudag.
skráð klukkan 17:31
þriðjudagur, desember 18, 2001
Brjálað að gera gera við undirbúning Sólstöðuhátíðarinnar þann 21.Des í Tjarnarbíó, æfingar, viðtöl, reddingar, auglýsingar. Verð samt á Radio-X í kvöld í þættinum Rætur að spila tíu uppáhaldslög.
skráð klukkan 14:29
mánudagur, desember 17, 2001
Ahoy - maskínan mín er í uppvinnslu. Svo að ég hef ekki tækifæri til að skrifa mikið inn á hana sem stendur, en hugur minn er fullur af hugmyndum.
skráð klukkan 21:04