Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


laugardagur, september 22, 2001

Ugh. Vid forum med express rutu i dag fra Malacca til eyjunnar Penang. Rutan var luxus ruta med loftkaelingu og breidum saetum en samt ad sitja i henni i 10 klst var farid ad vekja hungurtilfinningu.

Leigubilstjorar eru skritnir strumpar. Vid erum alltaf ad lenda i einhverjum deilum vid tha um verd og okkur er svo sem sama tho ad vid borgum 200 iskr frekar en 150 iskr til ad komast fra rutustod ad hosteli. Thad sem er pirrandi stundum er thegar madur kemur ur rutu eda lest er madur umsetinn af fiskurum. Their sitja ekkert um ad pretta mann heldur bara thessir vidskiptahaettir ad stokkva a turista um leid og their birtast og bjoda manni akstur, stundum margir i einu, verdur threytandi til lengdar.

Ef ad Bush haettir ekki ad lata eins og John Wayne er haett vid ad hann muni koma thjod sinni i bobba hef eg eftir einum greinarhofund ur einu staersta enskumaelandi dagblada Malasiu. Annar bendir a ad skilgreiningar a terrorisma seu mismunandi eftir thjodum og i bandarisku skilgreiningunni se einungis talad um vodaverk andfelagslegra hopa sem terrorisma en ekki kemur til greina ad vodaverk sem rikisstjornir standa ad teljist til hrydjuverka. Thad munu thvi ekki hafa talist hrydjuverk thegar sprengjuflugvelar USA drapu hop sofandi manna i thjalfunarbudum i Afghanistan 1998. Einnig var i frett ad sala a bolum med myndum af Osama bin Laden hafi threfaldast i Indonesiu. Hann er hetja hja ofgamonnum muslima.

Thad var kannski eins og gott ad madur var ekkert ad alpast til Indonesiu thessa dagana, hvitur og bladrandi a ensku eins og amrikani.
skráð klukkan 14:09

föstudagur, september 21, 2001

Ad spila ekta turista er threytandi til lengdar. Vid forum i dag i gard sem heitir "Animal World," thar var fullt af misohamingjusomum dyrum i mislitlum stium hofd til synis. Thetta er svona husdyragardur Malasiu fyrir utan ad vid saum lika ymis frumskogardyr sem koma fra Afriku eda odrum Asiulondum. Thad var keyrt um med mannskapinn a viggirtum jeppa inn a randyrasvaedin og svaedi fyrir buffaloana og krokodila og fleiri dyr sem hafa meira svaedi i kringum sig en einhverja stiu.

Eg hef aldrei sed augntillit sem lysir eins vel megnustu fyrirlitningu eins og thegar eg horfidist i augu vid ljonid gegnum oryggisnetid a trukknum. Eg skynjadi vel afhverju ljonid er kallad konungur dyranna, eg upplifdi mig svo innilega sem ljonunum laegra settur thegar eg vard ad flaekjast inn a theirra svaedi a virudum trukk. Vid hittum lika apaflokk sem var alveg til i ad sitja fyrir i fanginu a okkur og kengurur sem leyfdu okkur ad klora ser.

Audvitad var gaman ad sja thessi dyr i navigi og eg veit ekki hvernig eg hefdi getad gert thad odruvisi en med thvi ad thau voru i haldi. Thad er omurlegt ad vita til thess ad dyrin fai ekki ad hlaupa um i sinu natturulega umhverfi og jafnvel ad ekki se svo mikid eftir af theirra natturulega umhverfi til ad thau hafi eitthvad til ad hlaupa um i. Samt var thad omurlega vid thennan gard ad tvisvar a dag var syning a dyrunum thar sem thau gerdu ymsar mannakunstir sem buid var a thjalfa thau i: Orang Utang spilar golf i stuttbuxum og gerir grettur sem eiga ad takna bros, filar spila fotbolta og hneigja sig fyrir klapplidinu og fleira rugl sem dyrum er alls ekki eiginlegt ad gera.

Fyrir utan okkur Sigrunu voru nokkrir tugir eda hundrud skolabarna ad horfa a. Ef ad theirra kynni af heimi dyranna verda einungis gegnum tamin skripalaeti og steikta likamshluta theirra a matbordinu, auk mikka mus i sjonvarpinu tha a natturan enga von. Ekkert thessara barna getur laert ad bera virdingu fyrir natturunni ef ad thetta er su mynd sem thau fa af hegdun dyranna og theirra natturulega umhverfi.

Malasiska pressan er ad benda a ad ef ad rikisstjorn USA aetli ser ad fa frid fyrir terroristum thessa heims verdi hun ad lata af hroka sinum og heimsvaldastefnu gagnvart odrum og fataekari rikjum. Einn greinarhofundur i the Sun bendir a ad England og Frakkland hafi latid af sinni nylendustefnu og thvi sloppid vid slikar arasir eins og sendirad USA og nu World Trade Center hafa ordid fyrir. Ef ad rikisstjorn USA aetlar ser i alvoru ad losna vid terrorisma ur heiminum verdi hun ad studla ad fridi i heiminum med thvi ad haetta ad afla ser ovina vida um heim.

Eg las eina frett um ad USA lystu sig tilbuna til ad beita efnahagsthvingunum til ad fa erlend riki til samstarfs vid sig i sinu "war against terrorism," mer finnst thetta vidhorf vera modgun vid alla tha einstaklinga sem enntha liggja daudir undir rustunum af WTC og astvina theirra. Bush og co hafa enga haefileika til ad bera til ad fa onnur riki til samstarfs heldur einungis ofbeldi, thad er thad eina sem their thekkja og skilja hvernig virkar.
skráð klukkan 09:20

fimmtudagur, september 20, 2001

Nu hafa ordid breytingar a planinu. Eg tharf ad fljuga heim gegnum Bangkok-Kobenhavn og ad fljuga fra Bali a Indonesiu til Bangkok kostar um 500 $, og ad fljuga fra Sumotru yfir til Bali eftir ad vid vaerum komin med ferju til Sumotru myndi kosta yfir 200$ og eg hef ekki nema taepa viku til ad dunda mer i Indonesiu og Indonesia er stort svaedi tho ad ekki se thar allsstadar ferdafaert vegna skapstyggdar heimamanna. Thannig ad vid skippum Indonesiu i thessari atlogu, kem bara aftur seinna. Sigrun aetlar ad vera afram i Asiu og kemur til med ad fara thangad eftir ad eg er farinn heim a klakann. En i bigerd er ad byrja ad fikra sig aftur upp Malasiu/Thailandsskagann i rolegheitum.

Vid forum bara ad spila turista i dag og forum i "Water World" gard i grennd vid Tampin sem er smabaer herna i grennd vid Malacca. Sigrun let sig vada i allar russibanalegustu rennibrautirnar en eg afneitadi allri adrenalinfikn og helt mig vid barnaefnid, var gaman samt tho ad half asnalegt vaeri ad vera a leika ser a liklega leiksvaedi efnadri turista. Tharna i kring eru golfvellir og einhverjar ibudir, allt finpussad. Liklega verdur madur ad venjast thvi ad vera jafnvel talinn med efnafolki eins og madur getur leyft ser ad gera vid peninga herna. Eins og eg hef sagt adur tha er low season i turisma herna svo ad vid vorum naerri ein i vatnagardinum.

Vid forum fram og tilbaka med almenningsstraeto (thad heitir bas a malasisku). Bilstjorinn ok eins og druslan dro og rett hinkradi stundum til ad leyfa folki ad hoppa inn og ut, keyrdi a midjum vegi, kjaftadi bara vid felaga sinn, gantadist i farthegum og stoppadi einusinni til ad hoppa i sjoppu ad na i sigarettur. Thad voru allir gluggar og dyr a straeto opnir svo ad vid hofum nokkur vindstig inni. Medfram veginum voru nautgripir a beit og haensn og onnur buslod rotadi i vegkantinum thratt fyrir umferdina. Gaman ad vera i sveitinni aftur.

Annars er nokkud serstakur dagur hja mer i dag thvi ad i dag eru akkurat tvo ar sidan eg vaknadi thunnur, skodadi hvad eg hafdi gert og hvad eg hafdi ekki gert sidustu daga og akvad ad thetta helviti gengi ekki lengur. Sidan tha hef eg verid ad vinna i thvi ad bua mer til lif an afengis og er alltaf ad uppskera.
skráð klukkan 11:12

miðvikudagur, september 19, 2001

Ad ganga um sofn er ekki alveg mitt uppahald nema i litlum maeli se. Vid erum buin ad vera a gangi um gotur antikborgarinnar Malacca i dag thar sem heilu goturnar eru samansettar ur husum sem eru i raun antik og eru antikverslanir i leidinni. Vid erum eiginlega a ferdinni utan turistatimans svo ad thad er thaegilega rolegt yfir eftir ysinn i Kuala Lumpur.

Eg keypti mer eina tjodlega pukagrimu til ad hafa heima, demoninn heldur fjarri odrum demonum. Svipud thjodtru og eg sa i Tyrklandi thar sem folk var med augu malud a husin sin til ad halda fjarri "the evil eye."

Thad er fyndid hvad heimurinn verdur litill thegar madur er a flakki. Vid tokum rutu i morgun hingad fra Kuala Lumpur og samferda okkur voru astrolsk stelpa og par fra sverige. Eg kannadist strax vid parid thar sem eg hafdi tekid eftir theim thegar vid vorum ad eta a Pizza Slut i Kota Bahru, thau konnudust vid ad hafa etid thar. I gaer sa eg hollenskt par sem eg kannadist vid i sjon, thau voru a leidinni upp rullustiga medan vid vorum a leidinni nidur med rullustiganum a moti, eg mundi eftir theim fra hostelinu i Jerantut.

Sigrun heldur ad eg se biladur ad horfa svona a folk og muna eftir thvi ut af einhverjum smaatridum. Saenska parid er nu svo otrulega hreint og strokid ad madur truir ekki ad thau seu a bakpokaflakki, eins og klippt ut ur Ken og Barbie auglysingu, thad passar ekki alveg vid svitastrokid lidid sem madur hittir yfirleitt.

Malacca er ferjustadur til ad komast yfir til Sumotru i Indonesiu. Vid aetlum ad leggja i hann thangad a morgun eda hinn, allt i lagi ad chilla adeins i rolegheitunum herna adur en farid er yfir.

Sigrun er farin ad safna klosettmyndum! Klosettadstaedur i Asiu valda henni miklum ahyggjum. Thad er erfitt stundum fyrir konur sem vanar eru hreinum setum og finerii ad ramba a sitja-a-haekjum-ser-yfir-holu pisserisadstodu thegar thaer eru i spreng. Sigrun er farin ad halda skra yfir thetta med myndavelinni sinni. Svo segir hun mig vera skrytinn!
skráð klukkan 09:20

þriðjudagur, september 18, 2001

Kuala Lumpur er orkufrek borg. Eg held ad thad se eitthvad mix af hropum solumannanna, faranlegri soluvoru theirra sem saekir allt i hinn faranlega vestraena lifsstil, othilinmaedi leigubilstjoranna, fyrirferd stolts borgarinna - skyjakljufanna, hrodalegum fotasarum betlaranna sem skreidast um goturnar, fjolbreytileika mannlifsins og sveitamannsins i mer sem ox ur grasi i sunnlenskri sveit. Eg finn mikinn mun fra thvi ad vera i smaerri baejum eins og Kota Bahru og Jerantut eda ad vera her i storborginni. Fjarlaegdin milli manna verdur meiri i storborgunum, samskiptin verda opersonulegri thegar folki er pakkad of thett saman.

Annars er thad magnad ad fylgjast med mannlifinu a gotum Kuala Lumpur. Her aegir ollu saman af folki. Kinverjar, Indverjar og Malajar telja saman megnid af thjodinni og truarbrogdin eru Islam, Buddismi, kristni og Hindu. Hver sa sem heldur thvi fram ad folk af olikum uppruna og olikri tru geti ekki lifad saman a ad koma hingad og dveljast um stund. Her gengur samfelagid upp an allra storafalla eftir thvi sem mer skilst og synist. Audvitad er eg bara turisti her og hef ekki heyrt vidhorf ur ollum attum en eg les blodin her og spjalla vid folk og thetta er thad sem eg hef sed hingad til. Ef ad einhver heldur thvi svo fram ad samfelagid gangi upp afthvi ad her eiga allir thad sameiginlegt ad vera einhversstadar ur Asiu er sa hinn sami jafn heimskur og hvert annad heimaalid barn. Asiulondin eru ekki sidur olik ad sidum og venjum en lond Evropu samt getur folk her flutt milli landa og buid saman an rembings.

Vid tokum ekta "tourist-tour" i morgun, skipulagt af tourist info center. Skodudum m.a. tinverksmidju. Konan sem for syndi okkur starfsemina ruddi ut ur ser margtugginni tolu um vinnslustigin, hljop med okkur gegnum verksmidjuna og for ekki ad brosa fyrr en kom ad thvi ad selja okkur minjagripi. Starfsfolkid brosti til okkar og kinkadi kolli, aftur eru thad hinir almennu launathraelar sem gleyma ekki godum sidum. Vid saum lika minjagripavinnslu sem stoppar stor skordyr eda setur thau i raf og byr til lyklakippur. Fyrst var okkur synd gryfja full af lifandi sporddrekum a staerd vid mannshond. Thessi grey eru alin til ad vera stoppud upp i minjagripi. Thad hljoma eins og enn omurlegri orlog en ad vera alinn til ad vera etinn. Vid keyptum ekkert i thessari stoppistod. I lokin forum vid i Hinduhof sem er byggt inn i rosastoran helli. Thar var fullt af apakvikindum sem toku vel i turistanammi og satu fyrir ljosmyndum eins og vaeru their alvanir. Okkur fannst their vera ofundsverdir, ferlega afslappadir ad tina i sig hnetur og avexti og klorudu ser i rassinum an thess ad skammast sin hid minnsta.

Svo aetlum vid bara ad chilla i dag. Regntimabilid er hafid i Malasiu og thad sem vid hofum sed er eins venjulegur dagur a Islandi nema ad thegar gerir skur er thad massift urhelli med halfslitersdropum. Vid urdum fljott hundblaut a roltinu i gaer.
skráð klukkan 07:13

mánudagur, september 17, 2001

Kuala Lumpur er brjalud borg. Kuala Lumpur er erfid borg, bara afthvi ad thad er allt of mikid um ad vera i henni. Thad er allt of mikid areiti fyrir folk til ad thola lengi. Vid vorum a roltinu i dag um borgina, forum upp i The KL Tower, sem er fjorda haesta bygging i heimi, og skodudum okkur um ofanfra. Her eru lika Twin Towers, ekki osvipadir theim sem voru i NY alveg thartil i sidustu viku. Thessir turnar og margar adrar skrytnar byggingar standa i omurlegu businesshverfi Kuala Lumpur. Thar er enginn hamingjusamur, vid maettum bara thunglyndu folki med bindi sem hefur liklega tha atvinnu ad standa i einhverjum tilgangslausum brefavidskiptum. Vid saum ekki gladan einstakling fyrr en vid gengum fram a mann sem var ad thrifa runnana i kringum KL Tower. Hann brosti ut ad eyrum og baud godann daginn hatt og snjallt svo vid forum aftur ad trua a mannkynid. Sa naesti sem vid maettum brosti lika og var hinn almennilegasti. Hann var oryggisvordur i byggingunni. Venjulegir launathraelar eins og vid sjalf. Their geta brosad framan i hvorn annan a afslappadan hatt.

Annars urdum vid fljott threytt og hundleid a roltinu. Vorum lika ad maela goturnar herna i ruma atta tima i striklotu. En vid kynntumst lika borginni a thann mata sem eg kann best vid: Vid gengum a turnana med thvi ad mida tha ut og reyna ad finna goturnar sem leiddu okkur ad theim. Sidan rotudum vid "heim" aftur med thvi ad fara nokkurnveginn i attina sem vid heldum vera retta, spurdum svo til vegar og hofdum onakvaemt kort til ad fara eftir. Ef madur gerir sig svolitid villtan og ringladan i okunnri borg og finnur svo leidina aftur af sjalfsdadun og med hjalp ibuanna tha er madur nokkud godur a attunum a eftir.

Vid rombudum a indverska hverfi Kuala Lumpur en vid buum i Chinatown, i hreinu og odyru farfuglaheimili i hverfinu. Herbergid er bara tvo rum og vifta, svo hofum vid adgang ad WC og sturtu og thad er thad eina sem vid thurfum. Thad er audvelt ad verda ser uti um odyra gistingu sem sinnir theim frumthorfum ad sofa og thvo ser. Svo eru i Chinatown fullt af allskyns forvitnilegum veitingastodum auk allra tegunda af USA kedjum i hverri gotu. Svo er hver gata i hverfinu solumarkadur af tjoldum sem selja sama draslid fram og tilbaka: onyt ur og bootlegar af tonlist og videoCD auk fatnadar med afestum fraegum merkjum. Eftir eina ferd eftir thessum gotum er madur ordinn frekar leidur a solumonnunum sem eru akvednir i thvi ad madur thurfi draslid theirra.
skráð klukkan 10:41

sunnudagur, september 16, 2001

A ferdalagi geta myndast hin einkennilegustu tengsl milli bakpokaflakkara. Vid Sigrun eignudumst vinkonur i thremur stelpum fra Austurriki. Vid kenndum theim sma islensku og Sigrun laerdi sma thysku, svo hlupu thaer um og sogdu "Eg er grod" og "rida nuna" framan i blasaklausa turista og malasiubua. Sigrun kallar thaer ekki annad en "Schlampe" (drusla). Nuna adan vorum vid ad tala vid danskt par sem var ad spyrja okkur rada vardandi ferdatilhogun til Kuala Lumpur. Eftir sma stund spurdi konan Sigruna hvadan vid vaerum thvi ad hun hafdi heyrt okkur tala vid thessar austurrisku en ekki attad sig a hvada mali vid hefdum eiginlega samskipti.

Vid hittum englending sem er buinn ad vera eitt ar a flakki og er med lauslegt plan fyrir naestu tvo. Hann er ekkert a leidinni heim. Hann var sex manudi i Indlandi og fekk baedi matareitrun og orma, thad munadi minnstu ad hann thyrfti ad fara i adgerd til ad losna vid ormana. Honum finnst thetta sjalfsagt, bara "part of the parcel" eins og hann sagdi.

I gaer for eg i nokkud massifa gongu inn i regnskoginn, fyrst forum vid a hengibru sem er i 40 metra haed, thad kitladi soldid i magann. Eftir thad for Sigrun ad bada sig i anni en eg gerdist skogarmadur (OrangUtang). Eg svitnadi vel og mikid, thurfti ad klifra yfir fallin tre og klifra upp og nidur gilskorninga. Eftir langa gongu sa eg blod i skonum minum og thar voru bunar ad koma ser fyrir blodsugur. Eg er med fjogur bit en tvaer thurfti eg ad plokka af mer. Thessi kvikindi eru eins og stuttir, graenir anamadkar med kjaft. Onnur var ordin ansi stor af blodinu minu. Eg fann ekkert fyrir bitunum en thad blaeddi lengi ur sarunum eftir thaer. Thaer gefa fornarlombum sinum eitthvad segaleysandi efni svo ad blodid storkni ekki i sarinu.

A medan eg bardist hetjulega vid blodsugur og frumskog for Sigrun i turista heimsokn i litid thorp frumbyggja, Orang Asli. Hun er ekki enn viss hvort ad thetta folk a heima annarsstadar og er i vinnu vid ad thykjast vera frumbyggjar eda hvort ad thetta eru ekta frumbyggjar og syndir tharna turistum eins og dyr i buri. A hvorugan veginn var hun satt vid heimsoknina tho ad frodlegt vaeri ad heyra hvernig thetta folk lifdi a.m.k. a arum adur.

Vid tokum bataferd i morgun til Jerantut og forum i storri rutu a eftir til Kuala Lumpur. Vid hofum akvedid ad kikja thangad og skoda okkur um i kring. Rutuferdin tekur um 3 og 1\2 tima og kostar innan vid 600 Iskr (26 Rringit). God maltid herna kostar um 120 - 150 Iskr. Og maturinn er svo godur ad madur kemur feitur og fallegur heim, svo fremi ad eg nai mer ekki i matareitrun i Indonesiu.
skráð klukkan 04:53


This page is powered by Blogger. Isn't yours?