Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


laugardagur, maí 05, 2001

Ég hef hitt þó nokkuð af fólki sem var spennt í sambandi við gönguna þann 1.Maí vegna þess að það bjóst við slagsmálum milli fasista og anarkista/andfasista. Ég veit um fólk sem fór í gönguna sérstaklega til að sjá þessi slagsmál og einn veit ég um sem tók með sér myndavél svona til vonar og vara.
Ég hafði ekki pælt í þeim möguleika fyrr en daginn fyrir 1. Maí að einn kunningi fór að spyrja mig hvort að ég vissi um mögulega göngu fíþ og hvernig ætti að taka á því máli.

Ég sé svo sem ekki tilganginn með götuslagsmálum við þjóðernissinna. Óneitanlega fengju þeir ekki að komast upp með að eitra andrúmsloftið með einhverjum "Ísland fyrir Íslendinga" borðum og flöggum. Veit samt að ef að þau yrðu lamin tilbaka myndu þau væla voða mikið um málfrelsi og mögulega styrkjast í mótlætinu. Sum þeirra eru andskotanum þrjóskari grunar mig og ef þau yrðu fyrir ofbeldi við að reyna að breiða út sinn málstað myndu þau svara með auknu ofbeldi einhvers staðar annarsstaðar. Það myndi kannski sýna sig í þau færu meira öndergránd, og kæmu frekar úr felum sem "ekta" nasistar með árásum á útlenska íslendinga í skjóli myrkurs ofl. miður fallegt.

Kannski er ég bara með ýkta fordóma gagnvart þjóðernissinnum, skammast mín ekkert voða mikið fyrir það. Hef það bak við eyrað samt.

Erpur National rappari og auglýsingahóra verður víst ekki kærður fyrir að molotova sendiráð bandaríkjanna í blakkáti. Gott fyrir hann. Ekki síður gott fyrir útlit utanríkisstefnu USA í íslenskum fjölmiðlum því ef að málið yrði tekið lengra er næsta víst að Erpur yrði fenginn í viðtöl hingað og þangað til að útskýra hvaða ástæðu hann gæti haft til að molotova sendiráð USA (kannski yrði sú tjáning bönnuð með lögum í málaferlunum og mögulega yrði Erpi meira annt um feril sinn sem skemmtikrafts en mannorð sitt sem pólitískt meðvitaðs einstaklings). Ef að einhver umræða færi í gang í íslenskum fjölmiðlum þá kæmi að einhverju leyti inn í umræðuna að utanríkisstefna USA er að ýta undir barnamorð og stríðsrekstur víða um heim. Viðskiptaþvinganir og vopnasala, fyrir utan beinar árásir á minni "óhlýðin" ríki er bara smá dæmi sem almennt er bannað að fjalla um eða gagnrýna í opinberum fjölmiðlum.

Verst er að ríkisstjórn íslands er stuðningsaðili allra aðgerða USA.

Enn verra er að almenningur lætur alltaf eins og þetta komi þeim ekki við og kjósa bara þann sem brosir breiðast.
skráð klukkan 01:20

fimmtudagur, maí 03, 2001

Á leiðinni heim úr vinnunni hjólaði ég við í Rínglunni til að skoða World Press Photo sýninguna. Hún er alltaf mögnuð þessi árlega sýning. Þessi litla snerting við daglegan, harðan veruleika margs fólk kemur alltaf við mig. Auðvitað verð ég áþreifanlega var við hve veruleikinn getur verið harkalegur í vinnunni á gjörgæsludeildinni en þessi ljósmyndasýning er sett upp í miðri einkennismynd misskiptingar auðvalds í heiminum, þar sem fólk gengur um étandi og eyðir peningum. Líka er í Rínglunni fæstar verslanirnar að selja eitthvað sem fólk í raun þarfnast. Einstöku selja matvöru og skjólfatnað en mestmegnis er um að ræða glingurbúllur.
Einna mest sláandi mótvægi er við verslunina Adonis, sem selur fæðubótarefni handa tilvonandi vöðvatröllum fyrir framan myndir af örvæntingarfullu fólki sem á jafnvel ekki líf. Hvað þá að það sé svo illa fyrir því komið andlega að það dreymi einu sinni um að eyða stórfé í að blása upp vöðvana á sér í egóistískri sjálfsástarsturlun.

Ég fór í þennan pakka á tímabili, var að lyfta með vini mínum sem er frekar mikill áhugamaður, og náði aftur utan á mig þeim kílóum sem ég var búinn að tapa í óreglulegu líferni. Þetta var ágætlega gaman á stundum. Aldrei losnaði ég samt við þá tilfinningu að þetta væri rangt, mér fannst þetta alltaf vera soldið sjúklegt. Öll þessi dýru tæki og öll þessi orka, þessi peningavelta í kringum fólk sem var að reyna að búa sér til líf. Þessi sjálfsdýrkun sem fer fram á púlstöðvunum á lítið skylt við að rækta heilbrigða sál í hraustum líkama. Þarna er bara að verki hin gamla græðgi kapitalismans. Þessar stöðvar eru reknar og hannaðar af viðskiptafræðingum en ekki heilsufræðingum. Það kynnist enginn sjálfum sér með því að einblína á skrokkinn, það þarf að rækta sinn innri mann með. Flott og frábært að halda sér í formi en eitt málið er að það fólk sem er að stunda þessar stöðvar hefur ekkert sérstakan áhuga á því. Það vill hafa útlitið í lagi en nennir ekki rassgat að ganga úti í náttúrunni eða gerast svo sjálfsvæn eða umhverfisvæn að hjóla í vinnuna.

Ég fíla mig fit og flottan í dag þar sem ég finn orkuna streyma um mig á reiðhjólinu. Þar er ég frjálsari og geng fyrir eigin orku.
skráð klukkan 21:05

þriðjudagur, maí 01, 2001

1. Maí í dag. Ég dustaði rykið af stóra svarta fánanum og spreyaði á hann rautt anarkistamerki til að enginn færi nú að misskilja neitt. Ég var búinn að heyra af því að einhverjir nýnastistakjánar hefðu haldið í fyrra að svart flagg væri flagg fasista. Heimska nýnasista ríður ekki við einteyming. Í göngunni í fyrra var líka heilmikið af fólki að spyrja afhverju við værum með sorgarflögg! Ég tók líka fram FUCK THE GOVERNMENT! borðann og rölti með nokkrum anarkistum til Hallgrímskirkju.

Himnarnir grétu hástöfum yfir tíu ára valdaferli Davíðs Oddsonar og hans viðskiptafélaga en göngufólk lét það ekki á sig fá.

Á Ingólfstorgi rölti ég um með dreifimiða um Anarkisma og hlýnaði við hjartarætur yfir því hve margt fólk tók við þeim af áhuga. Mér fannst líka gaman að hitta þó nokkuð af ungu liði sem er anarkistar og lifir sig inn í pælinguna, er virkt í hausnum og vill gera eitthvað meira við líf sitt en éta pizzu yfir andskotans sjónvarpinu.

Þarna var líka fólk frá Ísland/Palestína, Hardcore aktivistar eins og Birkir, Árni og Axel úr I Adapt með Gay Pride og Anti fíþ borða, Villi Bensínsprengja harður andfasisti og fullt af fólki úr hálfstofnuðum samtökum ungsfólks gegn fordómum með "Gegn Rasisma" límmiða, prentaða út úr tölvu. Frábært hvernig fólk er að vera virkt á eigin forsendum og skapa virka andstöðu við fordóma, rasisma og fasisma almennt. Mest þó finnst mér gaman að sjá hvað hardcore liðið er hugsandi. Þetta var ekki til t.d. Þegar dauðarokkið var í tísku í öndergrándinu.

Þarna finnst mér eitthvað vera að gerast frekar en þegar ungt fólk sem vill vera virkt á pólitískan hátt og fer og gengur einhverja ungliðahreyfingu einhvers staðlaðs stjórnmálaflokksins. Það fær ekki að skapa á eigin forsendum. Þeirra virkni fer öll fram innan flokksins og þegar upp er staðið er það flokkurinn sem nýtur vinnunar, einstaklingurinn fær smá tilfinningu um að hafa komið einhverju til leiðar en í raun gerðist ekki rassgat því að flokkurinn er fastur í stöðluðu kerfi sem kemur í veg fyrir að nokkur skapaður hlutur muni breytast meðan enn er til fólk sem hefur trú á hinu útriðna flokkalýðræði.

Rosalega var ég blautur eftir daginn en ánægður.

Allir sem eru að lesa þetta og vilja fá dreifimiða um anarkisma að lesa og/eða vilja dreifa þeim í sínu umhverfi, hvar á landi sem er, endilega setjið ykkur í samband. Ég sendi ykkur einhver eintök (ókeypis).
Það má rétta fólki þetta eða láta þá liggja eftir á stöðum þar sem fólk kemur. Sjoppum, biðstofum, plötubúðum, kaffistofum, skólum, vinnustöðum ofl. Ég er líka með dreifimiða sem drulla yfir fáránleik þjóðernissinna.

Setjið ykkur í samband.
skráð klukkan 22:21

sunnudagur, apríl 29, 2001

Ég er áskrifandi að The MATCH! - A Journal of Ethical Anarchism. Þetta blað er gefið út af anarkista á miðjum aldri sem er með eigin prentvélar heima og knýr þær að hluta til með sólarorku. Þannig verður hann ekki stoppaður í útgáfu með því að einhverji ógni prentsmiðjunni sem þjónustar hann. Hann gerir sér skýra grein fyrir því hve tölvumarkaðurinn er sjúkur og bendir á fáránleika þess að öll fyrirtæki eru að kaupa sér rándýr tölvukerfi sem virka ekki og þá eru bara keypt ný tölvukerfi. Enn dýrari. Skólar og bókasöfn eyða af sínu takmarkaða fjármagni í tölvur í stað þess að reyna að borga kennurum mannsæmandi laun eða bæta aðstæður nemenda að öðru leyti.

Stór hluti af the Match! er bréf frá lesendum. Eitt þeirra lýsir ástandinu í Minnesota þannig að búið sé að henda miklu magni af bókum úr bókasöfnum til að búa til pláss fyrir tölvur!
Lögreglan þar gengur hart fram í því með nýjum lagasetningum að hrekja burt allt furðulega útlítandi fólk, eins og 12 ára skate-pönkara, flakkara og róna, til að gefa borgum fallegri áferð fyrir túrisma.
Í bönkunum er búið að koma því á að allir sem koma inn nýir viðskiptavinir verði að gefa upp fingraför sín.
Hæstiréttur Minnesota hefur í lögum að allt anal eða oral kynlíf (hvort sem er straigt eða gay) sé bannað. Margt annað sem kemur ríkinu ekki við er bannað líka.

Ég sá í mbl að í Ástralíu er það komið í lög að blóðprufur eru teknar úr öllum nýburum undir því yfirskini að þetta sé hentugt við mannshvörf og til að upplýsa glæpastarfsemi.

Lögregluríkið er alls staðar að koma sér fyrir inni í lífum fólks. Á litla saklausa Íslandi höfum við nú kamerur til að fylgst sé með okkur. Verið er að safna upplýsingum um erfðaefni allrar þjóðarinnar, það er meira að segja einkafyrirtæki sem á einkarétt á þeim upplýsingum.

Svo er fólk hissa á að maður sé anarkisti.
skráð klukkan 20:42


This page is powered by Blogger. Isn't yours?