Daglegt Hugarstríð Sigga Pönk


laugardagur, apríl 21, 2001

Á þessari heimasíðu mun ég birta ýmiskonar pælingar í framtíðinni. Þannig geta netfíklar og aðrir sem annaðhvort hafa ekkert betra við tíma sinn að gera eða langar að fylgjast með ýmsu af því sem gengur á í hausnum á mér lesið.
Fyrir þá sem ekki vita þá heiti ég Sigurður Harðarson og er "söngvari" hljómsveitarinnar Forgarður Helvítis. Ég er starfandi hjúkrunarfræðingur, pönkari, anarkisti, skáld, faðir, hardcore aktivisti, grænmetisæta, feministi (eins langt og það nær fyrir karlmenn), búfræðingur, heimshornaflakkari og áhugamaður um ýmsa öfga í mannlegri hegðun.

Þessi áhugamál og ýmis frekari litbrigði á mínum lífsstíl munu efalaust skila sér á þessar síður.
skráð klukkan 12:41


This page is powered by Blogger. Isn't yours?