![]() |
|
| Þessi síða er tileinkuð blackmetal-bandinu Ámsvartnir. Hljómsveitin er reyndar hætt störfum og er þetta því legsteinn hennar. | |
| Nafnið Ámsvartnir er sótt í Norræna goðafræði, nánar tiltekið í frásögnina af viðureign goðana við Fenrisúlfinn. Þeirri viðureign lauk með því að Fenrisúlfur var færður út í hólma í vatninu Ámsvartnir þar sem hann var bundinn. Þar mun hann bíða Ragnarraka, endaloka heimsins. | |
| Eins og segir í Gylfaginningu: | |
| "Þá er fjöturinn var færður ásunum þökkuðu þeir vel sendimanni sitt erindi. Þá fóru æsirnir út í vatn það er Ámsvartnir heitir, í hólm þann er Lyngvi er kallaður, og kölluðu með sér úlfinn, sýndu honum silkibandið og báðu hann slíta ..." |